Lyftingarnámskeið | 30. apríl
Upplýsingar Kennarar Salir Panta námskeiðLyftinganámskeið - Ólympískar- og Kraftlyftingar
Um er að ræða námskeið þar sem farið verður yfir grunnatriði og tækni í bæði ólympískum lyftingum, jafnhendingu (clean & jerk) og snörun (snatch) sem og keppnislyftur í kraftlyftingum, hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu.
Æfingarnar eru tvískiptar og er fólki velkomið að leggja meiri áherslu á aðra hvora íþróttina.
Þér er mætt á þeim stað sem þú ert og öll velkomin.
13 ára aldurstakmark er á þetta námskeið
Námskeiðið er kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:30-19:45.
Kennari námskeiðs er Anna Guðný Elvarsdóttir.
Verð: 29.990 kr,-
Innifalið í námskeiðinu er:
Tvær æfingar á viku undir handleiðslu þjálfara LFK (Lyftingafélag Kópavogs) Aðgangur að báðum stöðvum Sporthússins Aðgangur að tækjasal Sporthússins og pottasvæði Aðgangur að öllum opnum tímum