Barnagæslan Krílabær
Barnagæslan Krílabær í Kópavogi er lokuð tímabundið.
Barnagæslan Krílabær er við æfingasalinn í stórum og rúmgóðum sal. Þar geta börnin horft á barnaefni í dýnuhorninu, litað eða leikið sér með ýmiskonar leikföng á meðan mamma og pabbi rækta sjálfan sig.
Reglur
Allir sem nýta sér þjónustu barnagæslunnar þurfa að undirrita samning. Reglur barnagæslunnar gilda fyrir viðskiptavini jafnt sem starfsmenn Sporthússins sem nýta sér barnagæsluna á auglýstum tímum.
Aðeins er leyfilegt að koma með börn undir 12 ára aldri í barnagæslu Sporthússins á auglýstum tímum barnagæslu.
- Af öryggistástæðum er stranglega bannað að koma með börn á öðrum tímum en reglur segja til um. Vegna slysahættu er einnig bannað að taka börn með sér í tækjasal, teygjusal, sturtur, pottasvæði, eða önnur rými í húsinu.
Aldurstakmark
- 0-4 ára á morgnana
- 1 árs og eldri seinnipartinn og um helgar
Verðskrá
- Stakur tími = 300 kr.
- Stakur tími á systkini (óháð fjölda) = 400 kr.
- 10 tíma kort = 2.500 kr.
- 20 tíma kort = 3.900 kr.
1 mánaða kort (ótakmarkaður aðgangur) = 2.990 kr.
Greitt er fyrir þjónustuna í móttöku, og miði afhentur starfsmanni barnagæslunnar þegar komið er niður.
Hámarkstími fyrir barn er 1,5 klst. Hámarkstími er tilgreindur barnanna vegna og eru foreldrar/ forráðamenn beðnir um að virða hann.
Aðlögun barns í barnagæslu er lágmark tvö skipti (í fyrsta skipti er heimsókn með foreldri/forráðamanni. Í annað skipti er foreldri með barni í 15-30 mín og skreppur svo fram í 30 mín) Tíminn lengist eftir því hversu vel barni gengur að aðlagast. Sé barnið órólegt er foreldri/forráðamaður þess sóttur. Starfsfólki er ekki heimilt að skipta á bleiubörnum og er foreldri/forráðamaður sóttur í þeim tilvikum.
Náist hámarksfjöldi í barnagæslu er starfsmanni heimilt að vísa fólki frá.
Börn dvelja í Krílabæ alfarið á ábyrgð foreldra/forráðamanna sinna.